· kunni skil á helstu hugtökum og kenningum í menningarfræðum og táknfræði
· þekki til táknvísi og hlutverks hennar í skólastarfi
· læri um skapandi hugsun og þátt sköpunar í námi
· átti sig á tengslum (fjöl)miðla við menntun og samfélag
Færnimarkmið
Nemendur
· geti beitt hugtökum úr ofangreindum fræðum til að ræða um merkingarsköpun, samskipti og skilning
· geti tengt táknvísi og fjölbreytta miðlanotkun við nám í ýmsum greinum
· geti hagnýtt kenningar um miðlun og frumlega hugsun við skipulagningu á þeim verkefnum nemenda sem reyna á sköpun og miðlun
· geti valið tjáningarform, t.d. bækling eða stuttmynd, með hliðsjón af umfjöllunarefni og markhópi
· geti hagnýtt efni úr fjölmiðlum við kennslu, m.a. í því skyni að ungmenni átti sig á því með hvaða hætti þeir hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og hugmyndir um veruleikann
Inntak / viðfangsefni
Nemendur lesa valdar greinar um tengsl miðla við nám, tjáningu, skilning og merkingarsköpun. Jafnframt búa þeir til efni og hafa þá til hliðsjónar þær kenningar og það vinnulag sem lýst er í greinum og kennslustundum. Vettvangsnám á námskeiðinu tengist þeim stofnunum og fyrirtækjum í samfélaginu sem fást sköpun og (fjöl)miðlun.
Vinnulag
Umræða fer fram um efni greina og nemendur jafnt sem kennari gera grein fyrir aðalatriðum í þeim. Nemendur skrifa leiðarbók þar sem þeir halda til haga hugleiðingum sínum um efni námskeiðsins. Hver nemandi vinnur miðlunarverkefni, t.d. myndband eða ljósmyndasögu, til að tengja saman fræði og framkvæmd.
Námsmat
1) Umræða um lesnar greinar: a) Framsaga, 20%; b) Framlag í umræðum, 10%;
2) Námsdagbók, 25%; 3) Verkefni, 30%; 4) Jafningjamat, 15%. Hver nemandi leggur mat á framsögu og verkefni (1a og 3) annars nemanda. Í þessum tveimur matsþáttum vegur jafningjamatið 25% en mat kennarans 75%.
Miðlun, menntun og samfélag
Braut/námsleið/kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Valnámskeið
Misseri
Haust
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
Enginn
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Þekkingarmarkmið
Nemendur
· kunni skil á helstu hugtökum og kenningum í menningarfræðum og táknfræði
· þekki til táknvísi og hlutverks hennar í skólastarfi
· læri um skapandi hugsun og þátt sköpunar í námi
· átti sig á tengslum (fjöl)miðla við menntun og samfélag
Færnimarkmið
Nemendur
· geti beitt hugtökum úr ofangreindum fræðum til að ræða um merkingarsköpun, samskipti og skilning
· geti tengt táknvísi og fjölbreytta miðlanotkun við nám í ýmsum greinum
· geti hagnýtt kenningar um miðlun og frumlega hugsun við skipulagningu á þeim verkefnum nemenda sem reyna á sköpun og miðlun
· geti valið tjáningarform, t.d. bækling eða stuttmynd, með hliðsjón af umfjöllunarefni og markhópi
· geti hagnýtt efni úr fjölmiðlum við kennslu, m.a. í því skyni að ungmenni átti sig á því með hvaða hætti þeir hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og hugmyndir um veruleikann
Inntak / viðfangsefni
Nemendur lesa valdar greinar um tengsl miðla við nám, tjáningu, skilning og merkingarsköpun. Jafnframt búa þeir til efni og hafa þá til hliðsjónar þær kenningar og það vinnulag sem lýst er í greinum og kennslustundum. Vettvangsnám á námskeiðinu tengist þeim stofnunum og fyrirtækjum í samfélaginu sem fást sköpun og (fjöl)miðlun.
Vinnulag
Umræða fer fram um efni greina og nemendur jafnt sem kennari gera grein fyrir aðalatriðum í þeim. Nemendur skrifa leiðarbók þar sem þeir halda til haga hugleiðingum sínum um efni námskeiðsins. Hver nemandi vinnur miðlunarverkefni, t.d. myndband eða ljósmyndasögu, til að tengja saman fræði og framkvæmd.
Námsmat
1) Umræða um lesnar greinar: a) Framsaga, 20%; b) Framlag í umræðum, 10%;
2) Námsdagbók, 25%; 3) Verkefni, 30%; 4) Jafningjamat, 15%. Hver nemandi leggur mat á framsögu og verkefni (1a og 3) annars nemanda. Í þessum tveimur matsþáttum vegur jafningjamatið 25% en mat kennarans 75%.
[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni